Lenglet til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Aston Villa

Mynd: Aston Villa
Aston Villa hefur gengið frá eins árs lánssamningi við Clement Lenglet frá Barcelona.
Lenglet er örvfættur miðvörður sem félagið hefur verið í leit að eftir að Tyrone Mings meiddist illa í byrjun tímabilsins.
Lenglet er franskur landsliðsmaður sem var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili og var á lista Tottenham fyrir komandi tímabil. Hann endar hjá Villa sem verður í Sambandsdeildinni í vetur.

Sevilla hafði einnig áhuga á Lenglet sem er 28 ára og á hann þrjú ár eftir af samningi sínum við Barcelona.
Clément Lenglet. Villan. ???????? pic.twitter.com/JOmV6E2Ofs
— Aston Villa (@AVFCOfficial) September 1, 2023