Fotbolti.net
01.09.23 - 15:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tottenham lánar Tanganga til Augsburg (Staðfest)

Tottenham lánar Tanganga til Augsburg (Staðfest)
Canon

Mynd: Augsburg

Tottenham hefur staðfest að félagið sé búið að lána Japhet Tanganga til þýska félagsins Augsburg.

Lánssamningnum fylgir kaupskylda, Augsburg þarf að kaupa leikmanninn næsta sumar.

Það er ákvæði sem fylgir kaupskyldunni og ætla má að það séu annað hvort spilaðir leikir eða þá að Augsburg haldi sæti sínu í Bundesliga - mögulega bæði.
Tanganga er 24 ára miðvörður sem er uppalinn hjá Tottenham og á leiki fyrir öll yngri landslið Englands.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið tímabilið 2019-20 og hefur alls leikið 50 keppnisleiki fyrir Tottenham. Á síðasta tímabili kom hann einungis við sögu í sjö leikjum.

Hann verður í treyju númer 39 hjá Augsburg.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.