Glen Kamara til Leeds (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá Leeds United eftir að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir nokkrum mánuðum síðan. Félagið hefur misst lykilmenn og fengið nýja leikmenn inn, en Glen Kamara er sá áttundi sem félagið fær til sín í sumar.
Kamara var algjör lykilmaður í liði Rangers í Skotlandi en hann er 27 ára gamall og spilar sem varnarsinnaður miðjumaður.
Kamara er fæddur og uppalinn í Finnlandi og á 52 landsleiki að baki. Hann var hjá Arsenal í fimm ár en kom aðeins við sögu í einum leik áður en hann fór til Dundee FC og vakti athygli á sér í skoska boltanum.
Leeds hefur fengið Ethan Ampadu, Sam Byram, Karl Darlow, Joel Piroe, Joe Rodon, Djed Spence og Ilia Gruev síðan liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni, en liðið er aðeins komið með fimm stig eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins í Championship.
Leeds er talið borga um 6 milljónir punda fyrir Kamara sem gerir fjögurra ára samning.
Þá má greina frá því að Leeds hafnaði 20 milljóna punda tilboði frá Burnley í kantmanninn knáa Crysencio Summerville.


Mynd: EPA





