Fotbolti.net
01.09.23 - 09:39
Elvar Geir Magnússon

Matheus Nunes til Man City (Staðfest)

Matheus Nunes.

Matheus Nunes.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur tilkynnt um kaup á Matheus Nunes frá Wolverhampton Wanderers. Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur gert fimm ára samning við City.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem City kaupir í sumar; á eftir Mateo Kovacic, Josko Gvardiol og Jeremy Doku.

Nunes er 25 ára miðjumaður sem hefur skrifað undir samning til 2028. Hann er keyptur á 53 milljónir punda frá Wolves.

Nunes lék 41 leik fyrir Wolves, hann mun bera treyjunúmerið 27 og hefur leikið ellefu landsleiki fyrir Portúgal.

„Ég er svo ánægður með að vera kominn til Manchester City, Evrópumeistarana. Þetta er félag sem ég hef lengi heillast að. Það var ekki hægt að hafna því tilboði að vinna undir Pep Gurdiola, einum besta stjóra sögunnar, og spila meðal bestu leikmanna heims," segir Nunes.

„Ég lærði svo mikið hjá Wolves og er spenntur fyrir því að halda áfram að bæta mig í ensku úrvalsdeildinni."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.