FRÉTTIR14.10.2023, 10:16
Theodór Elmar Bjarnason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er nú bundinn uppeldisfélagi sínu til 2025.
Elmar er 36 ára miðjumaður sem lék 41 landsleik fyrir Ísland á landsliðsferli sínum og lék með liðinu á EM.
Hann lék í atvinnumennsku 2004 til 2021 en þá kom hann aftur til KR.
Samningamál hans hafa verið talsvert til umræðu síðustu mánuði en nú hefur hann bundið enda á allan vafa með því að skrifa undir.
<i>„Ég er fæddur og uppalinn hérna í Vesturbænum. Hér vil ég helst vera,"</i> sagði Elmar í upphafi mánaðarins.
KR hafnaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar á liðnu tímabili en ekki er enn ljóst hver verður þjálfari liðsins á næsta tímabili. Stjórn félagsins ákvað að endursemja ekki við Rúnar Kristinsson.
FRÉTTIR13.10.2023, 16:29
Knattspyrnudeild Víkings hefur ráðið Óskar Örn Hauksson sem styrktarþjálfara meistaraflokk karla og tekur við keflinu af Guðjóni Erni Ingólfssyni sem fór til KR. Óskar er menntaður íþróttafræðingur frá HR og útskrifaður úr ÍAK styrktarþjálfunnám frá Keili.
FRÉTTIR13.10.2023, 08:00
Eins og greint var frá í síðustu viku þá eru bræðurnir Björn og Kristján Mássynir hættir þjálfun hjá KFG, Knattspyrnufélagi Garðabæjar.
<b>Félagið leitar því að þjálfara og óskar eftir umsóknum á formann félagsins á <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>.</b>
FRÉTTIR13.10.2023, 00:36
Spænski þjálfarinn Jorge Vilda er tekinn við kvennalandsliði Marokkó aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa unnið heimsmeistaramótið með kvennalandsliði Spánar.
FRÉTTIR13.10.2023, 00:09
Ian Jeffs er nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá Haukum, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
FRÉTTIR12.10.2023, 17:00
Christophe Galtier hefur tekið við sem stjóri Al-Duhail í Katar af Hernan Crespo.
Galtier vann franska meistaratitilinn með Paris St-Germain á síðasta tímabili en var skipt út í sumar fyrir Luis Enrique.
FRÉTTIR12.10.2023, 16:45
Ægir hefur gengið frá tveggja ára samningi við Andra Þór Grétarsson sem kemur til félagsins frá KFK þar sem hann spilaði í sumar. Andri hefur glímt við erfið meiðsli en náði að spila talsvert í sumar.
Andri lék fimmtán leiki með KFK og hjálpaði liðinu að komast upp í 3. deild og undanúrslit Fótbolti.net bikarsins.
FRÉTTIR12.10.2023, 06:00
Spænski þjálfarinn Albert Riera er tekinn við franska liðinu Bordeaux, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
FRÉTTIR11.10.2023, 17:00
Andros Townsend fyrrum vængmaður Everton hefur skrifað undir samning við nýliða Luton Town en samningurinn gildir til janúar.
Þessi 32 ára leikmaður var nálægt því að semja við Burnley í sumar en félagið dró tilboð sitt til baka þar sem það vildi ekki hindra spilmínútur ungra leikmanna.
FRÉTTIR11.10.2023, 15:44
Miðjumaðurinn Marko Vardic hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍA, sem gildir út leiktíðina 2025.
Vardic er 28 ára Slóveni sem getur einnig spilað í miðverði.
Hann spilaði 30 leiki fyrir Grindavík síðasta tímabil og skoraði fjögur mörk. Hann var kjörinn besti leikmaður Grindavíkur síðasta tímabil.
FRÉTTIR11.10.2023, 13:00
Gonzalo Zamorano, sem er samningsbundinn Selfossi, hefur verið lánaður til CD El Alamo á Spáni.
Sóknarmaðurinn er uppalinn hjá félaginu sem staðsett er í Madríd og er með lið í fjórðu deild.
FRÉTTIR11.10.2023, 10:10
Birmingham City hefur ráðið Wayne Rooney, fyrrum sóknarmann Manchester United og Englands, sem nýjan stjóra félagsins.
Birmingham hefur verið að gera góða hluti í Championship-deildinni og er í sjötta sæti. John Eustace var hinsvegar rekinn, af þeirri einu ástæðu að forráðamenn félagsins vildu fá inn stjörnu til að vera andlit félagsins.
FRÉTTIR11.10.2023, 06:00
<p>Diego Alonso hefur verið ráðinn nýr stjóri Sevilla eftir að Jose Luis Mendilibar á dögunum.</p>
FRÉTTIR10.10.2023, 23:00
<p>Filippo Inzaghi hefur verið ráðinn stjóri ítalska liðsins Salernitana.</p>
FRÉTTIR10.10.2023, 17:00
Í morgun tilkynnti belgíski töframaðurinn Eden Hazard að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hazard er 32 ára framsækinn leikmaður sem gat gert eiginlega allt með boltann. Hann var um nokkurra ára skeið einn allra besti, ef ekki hreinlega besti, leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá vinsælar færslur af X í dag þar sem einhver augnablik eða tölfræði er tekin fyrir. Til hliðar má sjá valdar myndir af Hazard.
FRÉTTIR10.10.2023, 10:25
Eden Hazard hefur tilkynnt að hann hefur lagt skóna á hilluna eftir að hafa yfirgefið Real Madrid eftir síðasta tímabil.
Hazard er 32 ára og gekk í raðir Real frá Chelsea árið 2019 fyrir 89 milljónir punda en lék aðeins 54 deildarleiki fyrir spænsku risana.
FRÉTTIR09.10.2023, 23:00
Enskir fjölmiðlar eru sammála um að Wayne Rooney sé að taka við hjá Birmingham City, sem leikur í Championship deildinni þar í landi.
FRÉTTIR09.10.2023, 22:00
Tottenham hefur staðfest ráðningu á Johan Lange sem tæknilegum stjóra félagsins. Lange mun hefja störf eftir næstu mánaðamót en hann hefur verið hjá Aston Villa undanfarin ár.
FRÉTTIR09.10.2023, 18:00
Tilkynnt var um þriggja ára framlengingu á samningi Oliver Ekroth við Víking í dag. Samningurinn hans var að renna út en hann komst að samkomulagi við félagið um framlengingu.
Í frétt á heimasíðu Víkings tjáðu þeir Oliver, Arnar Gunnlaugsson og Kári Árnason sig um tíðindin.
FRÉTTIR09.10.2023, 17:13
Björn Sigurbjörnsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna á Selfossi undanfarin tvö tímabil, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum félagsins í dag.
Á fyrsta tímabili Björns hafnaði liðið í 5. sæti Bestu deildarinnar en liðið féll síðan úr deildinni í sumar eftir að hafa verið spáð 6. sætinu í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið.
Björn hefur mikla þjálfarareynslu en hann var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Kristianstads í Svíþjóð tíu ár og tók þátt í uppbyggingu yngri flokka starfs félagsins frá árinu 2015. Áður en hann hélt erlendis hafði hann verið aðstoðarþjálfari bæði hjá karla- og kvennaliðum Víkings og þjálfað yngri flokka hjá Víkingi, Þrótti R, Fram og Val.