Fotbolti.net
09.10.23 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rooney fær þrefalt hærri laun en Eustace

Rooney fær þrefalt hærri laun en Eustace
Canon

Mynd: Getty Images

Enskir fjölmiðlar eru sammála um að Wayne Rooney sé að taka við hjá Birmingham City, sem leikur í Championship deildinni þar í landi.
Rooney tekur við félaginu eftir að hafa mistekist að koma DC United í úrslitakeppni MLS deildarinnar í tvígang, en hann hafði ekki úr sérlega miklu að moða og hefur fengið lof fyrir frammistöðu sína þar.

Stjórnendur Birmingham hafa miklar mætur á Rooney og greinir Times frá því að félagið muni borga honum þrefalt hærri laun heldur en forvera hans, John Eustace, sem var rekinn í gær.

Birmingham rekur Eustace (Staðfest) - Rooney að taka við
TENGT EFNI

Birmingham rekur Eustace (Staðfest) - Rooney að taka við



Í frétt Times er einnig greint frá því að Birmingham muni kynna Rooney formlega til leiks í vikunni.

Birmingham fór vel af stað undir stjórn Eustace á nýju tímabili en eigendur félagsins ákváðu samt að reka hann til að ráða stærra nafn til félagsins. Liðið er í sjötta sæti Championship deildarinnar, með 18 stig eftir 11 umferðir, og er búið að vinna tvo leiki í röð.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Birmingham000
1Coventry46+5295
1Cardiff City5+815
2Blackburn000
2Ipswich Town46+3384
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3Bolton000
4Wolves5+310
4Bristol City000
5Burnley000
5Sheffield Utd5+19
6Hull City46+473
6Nott. Forest509
6Cardiff City000
7Preston NE5+18
7Charlton Athletic000
8Hull City5+57
8Derby County000
9Lincoln City000
9Middlesbrough5+17
10Middlesbrough000
10QPR507
11Millwall000
11Reading507
12Norwich000
12Derby County5-27
13Bristol City5+16
13Portsmouth000
14Fulham5+16
14Preston NE000
15QPR000
15Barnsley506
16Sheffield Utd000
16Sheffield Wed506
17Millwall5+25
17Southampton000
18Aston Villa5-25
18Stoke City000
19Swansea000
19Sunderland5-35
20Birmingham5-34
20Watford000
21Burton Albion5-54
21West Brom000
22Norwich5-64
22Oxford United46-1447
22West Ham000
23Brentford5-42
23Leicester City46-1046
23Wolves000
24Bolton5-62
24Sheffield Wed46-600
24Wrexham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.