Fotbolti.net
14.10.23 - 10:16
Elvar Geir Magnússon

Theodór Elmar framlengir við KR (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason.

Theodór Elmar Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Elmar Bjarnason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er nú bundinn uppeldisfélagi sínu til 2025.

Elmar er 36 ára miðjumaður sem lék 41 landsleik fyrir Ísland á landsliðsferli sínum og lék með liðinu á EM.

Hann lék í atvinnumennsku 2004 til 2021 en þá kom hann aftur til KR.

Samningamál hans hafa verið talsvert til umræðu síðustu mánuði en nú hefur hann bundið enda á allan vafa með því að skrifa undir.

„Ég er fæddur og uppalinn hérna í Vesturbænum. Hér vil ég helst vera," sagði Elmar í upphafi mánaðarins.

KR hafnaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar á liðnu tímabili en ekki er enn ljóst hver verður þjálfari liðsins á næsta tímabili. Stjórn félagsins ákvað að endursemja ekki við Rúnar Kristinsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.