Fotbolti.net
13.10.23 - 00:36
Brynjar Ingi Erluson

Umdeildur heimsmeistari tekur við landsliði Marokkó (Staðfest)

Jorge Vilda er tekinn við kvennalandsliði Marokkó

Jorge Vilda er tekinn við kvennalandsliði Marokkó

Canon

Mynd: Getty Images

Hertz
Spænski þjálfarinn Jorge Vilda er tekinn við kvennalandsliði Marokkó aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa unnið heimsmeistaramótið með kvennalandsliði Spánar.
Vilda þjálfaði spænska kvennalandsliðið frá 2015 áður en hann var rekinn eftir að hafa unnið HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í ágúst.

Þjálfarinn þótti afar umdeildur í starfi sínu hjá kvennalandsliðinu, en á síðasta ári ákváðu fimmtán leikmenn landsliðsins að sniðganga það vegna Vilda.

Vilda var sakaður um að beita þær óásættanlegri meðferð og var leikstíll hans einnig gagnrýndur. Eitrað andrúmsloft skapaðist í kringum liðið, en aðeins þrjár af þessum fimmtán leikmönnum sneru aftur í landsliðið fyrir HM.

Liðið vann England, 1-0, í úrslitum mótsins og fagnaði heimsmeistaratitilinum, en eftir leikinn átti sér stað hneyksli sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Forseti spænska fótboltasambandsins, Luis Rubiales, smellti þá rembingskossi á Jennu Hermoso, leikmann landsliðsins, gegn hennar vilja.

Rubiales neitaði að segja af sér fyrstu vikurnar, en lét undan á endanum og yfirgaf sambandið. Vilda var einn af þeim sem var látinn fara í kjölfarið, en hann telur að það hafi verið gert vegna vinskapar síns við Rubiales.

Vilda var ekki lengi að finna sér nýtt starf, en í dag var hann ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Marokkó.

Marokkó komst í fyrsta sinn á HM í sumar og fór alla leið í 16-liða úrslit.

Afríkumótið verður haldið í Marokkó á næsta ári, en þjóðin hafnaði í öðru sæti á síðasta móti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.