Óskar Örn ráðinn til Víkings (Staðfest)

Óskar Örn Hauksson.

Mynd: Víkingur R.

Óskar Örn lék með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Örn Hauksson.

Mynd: Víkingur R.
Knattspyrnudeild Víkings hefur ráðið Óskar Örn Hauksson sem styrktarþjálfara meistaraflokk karla og tekur við keflinu af Guðjóni Erni Ingólfssyni sem fór til KR. Óskar er menntaður íþróttafræðingur frá HR og útskrifaður úr ÍAK styrktarþjálfunnám frá Keili.
Óskar er leikjahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi en hann á samtals 19 tímabil í efstu deild og spilaði samtals 373 leiki og skoraði í þeim 88 mörk. Samtals á Óskar 23 ár í meistaraflokki og spilað 709 leiki samtals og skorað í þeim 197 mörk.
„Spennandi tímar fyrir félagið að hafa samið við Óskar Örn sem nýjan styrktarþjálfara okkar. Óskar þarf ekki mikla kynningu en hann hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar síðastliðinn áratug svo það er frábært að fá hann sem nýja líkamsræktarþjálfara liðsins. Það hefur verið lítil hreyfing í þjálfarateyminu hjá okkur undanfarinn ár og það er alltaf gott að fá nýjar raddir í teymið," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Óskar Örn segir sjálfur: „Ég er mjög spenntur að fá þetta tækifæri að verða nýr styrktarþjálfari karlaliðs Víkings og starfa með frábæru þjálfarateymi Víkings. Karlalið Víkings hefur stimplað sig inn sem eitt besta lið Íslandssögunnar þannig það er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri og aðstoða liðinu að viðhalda þeim frábæra árangurs sem hefur náðst til næstu ára."
Eins og fram kom hér á Fótbolta.net í gær þá hefur Óskar Örn verið að íhuga það að leggja skóna á hilluna, en gera má ráð fyrir því að skórnir séu komnir upp á hillu.
Óskar Örn, sem er 39 ára gamall, er af mörgum talinn besti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi og er hann goðsögn í íslenskum fótbolta. Hann lék með KR frá 2007 til 2021 og var algjörlega magnaður fyrir Vesturbæjarstórveldið.
Hann hefur einnig leikið með Njarðvík, Grindavík og Stjörnunni hér á landi. Þá hefur hann leikið með Sandnes Ulf í Noregi og Edmonton í Kanada.