Fotbolti.net
12.10.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Riera nýr þjálfari Bordeaux (Staðfest)

Albert Riera er mættur aftur til Frakklands

Albert Riera er mættur aftur til Frakklands

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski þjálfarinn Albert Riera er tekinn við franska liðinu Bordeaux, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Riera, sem spilaði með félögum á borð við Liverpool, Manchester City og Watford á ferli sínum, er á leið í fjórða þjálfarastarf sitt.

Hann var aðstoðarþjálfari Galatasaray í Tyrklandi áður en hann tók við Olimpija Ljubljana á síðasta tímabili og gerði liðið að slóvenskum meisturum, en framlengdi ekki samning sinn við félagið og skipti því yfir í Cejle.

Riera er nú mættur til Frakklands og hefur verið ráðinn þjálfari Bordeaux, en hann þekkir vel til þar eftir að hafa spilað með liðinu frá 2003 til 2005.

Bordeaux er í 13. sæti í frönsku B-deildinni með aðeins ellefu stig eftir tíu umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.