Filippo Inzaghi ráðinn stjóri Salernitana (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Filippo Inzaghi hefur verið ráðinn stjóri ítalska liðsins Salernitana.
Paulo Souza var rekinn úr starfi sínu sem stjóri liðsins í dag og var Inzaghi ráðinn í kjölfarið.
Undir stjórn Souza hefur liðið ekki náð að vinna leik í deildinni í ár. Liðið er í næst neðsta sæti með þrjú stig eftir átta umferðir.
Inzaghi er algjör goðsögn hjá Milan en hann lék þar frá 2001-2012 og lék 300 leiki og skoraði 126 mörk. Hann lagði skóna á hilluna árið 2012 og hóf að starfa með unglingaliðum félagsins, hann tók við aðalliðinu árið 2014 og stýrði liðinu í eitt ár.
Hann stýrði síðast Reggina en hann tók við liðinu í Serie B árið 2022 og kom liðinu í umspil um sæti í efstu deild en var látinn taka pokann sinn í kjölfarið vegna fjárhagsvandamála hjá félaginu.
Bróðir Filippo, Simone Inzaghi er stjóri Inter Milan.




