Fotbolti.net
11.10.23 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Selfoss lánar Gonzalo til uppeldisfélagsins (Staðfest)

Selfoss lánar Gonzalo til uppeldisfélagsins (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gonzalo Zamorano, sem er samningsbundinn Selfossi, hefur verið lánaður til CD El Alamo á Spáni.

Sóknarmaðurinn er uppalinn hjá félaginu sem staðsett er í Madríd og er með lið í fjórðu deild.
„Lánssamningurinn gildir þangað til í febrúar en þá er von á Gonzalo til landsins," segir í færslu Selfoss á samfélagsmiðlum.

Gonzalo er 28 ára og gekk hann í raðir Selfoss eftir tímabilið 2021 en hann hafði áður leikið með Hugin, Víkingi Ólafsvík, ÍA og ÍBV á sínum ferli á Íslandi. Á síðasta tímabili skoraði hann þrjú mörk í 17 leikjum þegar Selfoss féll úr Lengjudeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.