Fotbolti.net
11.10.23 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Townsend samdi við Luton (Staðfest)

Townsend lék þrettán landsleiki fyrir England en sá síðasti kom 2016.

Townsend lék þrettán landsleiki fyrir England en sá síðasti kom 2016.

Canon

Mynd: Getty Images

Andros Townsend fyrrum vængmaður Everton hefur skrifað undir samning við nýliða Luton Town en samningurinn gildir til janúar.

Þessi 32 ára leikmaður var nálægt því að semja við Burnley í sumar en félagið dró tilboð sitt til baka þar sem það vildi ekki hindra spilmínútur ungra leikmanna.
„Ég bjóst aldrei við því að klæða mig í Luton treyjuna, það er mikill heiður að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni," segir Townsend sem er fyrrum leikmaður Tottenham Hotspur, Newcastle United og Crystal Palace fen hann yfirgaf Goodison Park í sumar.

„Ég mun hjálpa liðinu á öllum sviðum sem ég get, hvort sem það er inni á vellinum, í klefanum eða á æfingasvæðinu. Ég vil gefa af mér með ástríðu og reynslu."

Townsend lék þrettán landsleiki fyrir England en sá síðasti kom 2016.

Luton hefur unnið einn af fyrstu átta leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og situr í 17. sæti.

Townsend mistókst að semja við félög í Tyrklandi og Sádí-Arabíu
TENGT EFNI

Townsend mistókst að semja við félög í Tyrklandi og Sádí-Arabíu


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.