Hazard leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Hazard í treyju Real Madrid.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hazard var frábær með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Hazard í treyju Real Madrid.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eden Hazard hefur tilkynnt að hann hefur lagt skóna á hilluna eftir að hafa yfirgefið Real Madrid eftir síðasta tímabil.
Hazard er 32 ára og gekk í raðir Real frá Chelsea árið 2019 fyrir 89 milljónir punda en lék aðeins 54 deildarleiki fyrir spænsku risana.

Hann vann tvo úrvalsdeildartitla á Stamford Bridge.
„Eftir sextán ára og meira en 700 spilaða leiki hef ég ákveðið að hætta sem atvinnumaður," segir Belginn sem tilkynnti í desember að hann væri hættur að spila fyrir þjóð sína, eftir að hafa verið hluti af hópnum sem féll út eftir riðlakeppnina á HM 2022.
Hjá Real Madrid vann Hazard sigur í Meistaradeildinni, HM félagsliða, Ofurbikar Evrópu, tvo spænska meistaratitla, einn bikartitil og tvo spænska Ofurbikara.
Hann skoraði bara sjö mörk í 76 leikjum í öllum keppnum fyrir Real Madrid og tími hans þar er stimplaður sem mikil vonbrigði.
Hazard hóf feril sinn með franska liðinu Lille. Hann skoraði 50 mörk í 149 leik fyrir félagið og hjálpaði því að verða tvöfaldur meistari, vinna deild og bikar í Frakklandi 2011.
Hann gekk í raðir Chelsea 2012 og blómstraði hjá Lundúnafélaginu, þar sem hann var valinn leikmaður ársins af öðrum leikmönnum deildarinnar 2014-15 tímabilið.
Hazard skoraði 110 mörk í 352 leikjum fyrir Chelsea, þar á meðal sigurmarkið í Evrópudeildarúrslitaleiknum 2019 gegn Arsenal en það var hans síðasti leikur fyrir félagið.
Hazard er einn af aðeins fjórum leikmönnum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora 15 mörk eða meira og eiga 15 stoðsendingar eða meira á einu tímabili. Hann er í hópi með Thierry Henry, Matt Le Tissier og Eric Cantona.
„Á ferli mínum var ég það heppinn að kynnast frábærum stjórum, þjálfurum og liðsfélögum. Ég vil þakka öllum fyrir frábæra tíma. Ég mun sakna ykkur allra," sagði Hazard meðal annars á samfélagsmiðlum.
Hazard spilað sinn fyrsta landsleik gegn Lúxemborg 2008 og lék alls 126 landsleiki og skoraði 33 mörk. Hann spilaði á þremur heimsmeistaramótum og tveimur Evrópumeistaramótum. Hann skoraði þrjú mörk á HM 2018 þegar Belgía hafnaði í þriðja sæti.