Johan Lange ráðinn til Tottenham (Staðfest)

Lange er lengst til vinstri.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Lange er lengst til vinstri.

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur staðfest ráðningu á Johan Lange sem tæknilegum stjóra félagsins. Lange mun hefja störf eftir næstu mánaðamót en hann hefur verið hjá Aston Villa undanfarin ár.
Lange er 43 ára gamall Dani sem hóf ferilinn sem aðstoðarþjálfari Ståle Solbakken hjá FC Kaupmannahöfn fyrir fimmtán árum síðan.
Hann fylgdi Solbakken til Wolves 2012 og var aðstoðarþjálfari hans þar í hálft ár, áður en Solbakken var rekinn. Lange var í kjölfarið ráðinn í starf sem aðalþjálfari hjá Lyngby en það virtist ekki henta honum nógu vel.
Í millitíðinni hafði Solbakken verið ráðinn aftur sem aðalþjálfari FCK og ákvað hann að krækja aftur í sinn mann til að starfa samhliða sér. Í þetta skiptið var Lange þó ekki ráðinn sem aðstoðarþjálfari, heldur yfirmaður þróunarmála. Það hlutverk var snöggt að breytast og var Lange orðinn yfirmaður tæknimála von bráðar.
Hann hélt því starfi í sjö ár hjá FCK við góðan orðstír, áður en hann var ráðinn til Aston Villa sumarið 2020.
Lange gerði góða hluti á þremur árum hjá Villa og er núna kominn í starf hjá Tottenham, toppliði ensku úrvalsdeildarinnar.
Lange var ráðinn inn sem yfirmaður fótboltamála hjá Villa en hlutverk hans breytist í sumar, eftir þrjú ár í starfi, þar sem hann var gerður að yfirmanni þróunarmála.

We are delighted to announce that Johan Lange has been appointed Technical Director with effect from 1 November 2023.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) October 9, 2023

Mynd: Getty Images