„Verið bestu árin á ferlinum"

Kyssti skjöldinn á laugardaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kyssti skjöldinn á laugardaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tilkynnt var um þriggja ára framlengingu á samningi Oliver Ekroth við Víking í dag. Samningurinn hans var að renna út en hann komst að samkomulagi við félagið um framlengingu.
Í frétt á heimasíðu Víkings tjáðu þeir Oliver, Arnar Gunnlaugsson og Kári Árnason sig um tíðindin.
Í frétt á heimasíðu Víkings tjáðu þeir Oliver, Arnar Gunnlaugsson og Kári Árnason sig um tíðindin.

TENGT EFNI
Oliver Ekroth hjá Víkingi til 2026 (Staðfest)
„Þetta hafa verið mín bestu ár hingað til í knattspyrnu og mér líður mjög vel í Víkingi. Frá fyrsta degi hefur mér liðið eins og ég sé partur af stórri fjölskyldu. Félagið hefur tekið gríðarlega á móti mér og fjöldskyldu minni frá því að við fluttum hingað fyrir einu og hálfu ári.“
„Við höfum stór markmið fyrir komandi ár hjá Víking og ætlum að halda áfram að vinna titla en á sama tíma gera alvöru atlögu að riðlakeppni í Evrópu," segir leikmaðurinn sjálfur.
Einn besti leikmaður deildarinnar
„Ég trúi því að Oliver sé einn besti leikmaður deildarinnar og hann sýndi það og sannaði með spilamennsku sinni í sumar“
„Við höfum stór markmið fyrir komandi ár hjá Víkingi og við erum ekki nærri því orðnir saddir. Við viljum viðhalda árangri okkar undanfarin ár á næstu árum og mun Oliver spila stórt hlutverk að hjálpa okkur að viðhalda þeim árangri. Það er einnig mikilvægt fyrir okkur sem félag að leikmenn haldi tryggð við félagið," sagði Kári Árnason sem er yfirmaður fótboltamála.
Topp leikmaður og enn betri manneskja
„Til að byrja með þá eru þetta frábærar fréttir fyrir Víking að Oliver hafi framlengt samning sinn til næstu þriggja ára. Oliver hefur sannað sig ekki bara sem topp leikmaður heldur enn betri manneskja. Oliver er frábær leikmaður og mikill leiðtogi innan sem utan vallar og því mikil gleðitíðindi að Oliver kjósi að halda áfram hjá okkur næstu þrjú árin," sagði þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson.


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir





