Fotbolti.net
13.10.23 - 00:09
Brynjar Ingi Erluson

Ian Jeffs tekinn við Haukum (Staðfest)

Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Haukum og Ian Jeffs, handsala samninginn

Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Haukum og Ian Jeffs, handsala samninginn

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Ian Jeffs er nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá Haukum, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Englendingurinn hætti með Þrótt eftir nýafstaðið tímabil og ákvað leita á önnur mið.

Jeffs tók við liði Þróttar haustið 2021 og kom liðinu síðan upp í Lengjudeildina ári síðar.

Í síðasta mánuði tryggði liðið sér áframhaldandi veru í Lengjudeildinni er það hafnaði í 8. sæti með 26 stig.

Áður þjálfaði hann bæði meistaraflokk karla- og kvenna hjá ÍBV ásamt því að vera aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins.

Jeffs er nú kominn með nýtt starf en í dag skrifaði hann undir þriggja ára samning við Hauka. Hann tekur við keflinu af Atla Sveini Þórarinssyni sem hætti eftir tímabilið.

Haukar höfnuðu í 7. sæti í 2. deild karla á síðasta tímabili með 31 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.