Fotbolti.net
09.10.23 - 17:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjössi Sigurbjörns áfram á Selfossi (Staðfest)

Bjössi Sigurbjörns áfram á Selfossi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Björn Sigurbjörnsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna á Selfossi undanfarin tvö tímabil, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum félagsins í dag.

Á fyrsta tímabili Björns hafnaði liðið í 5. sæti Bestu deildarinnar en liðið féll síðan úr deildinni í sumar eftir að hafa verið spáð 6. sætinu í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið.

Björn hefur mikla þjálfarareynslu en hann var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Kristianstads í Svíþjóð tíu ár og tók þátt í uppbyggingu yngri flokka starfs félagsins frá árinu 2015. Áður en hann hélt erlendis hafði hann verið aðstoðarþjálfari bæði hjá karla- og kvennaliðum Víkings og þjálfað yngri flokka hjá Víkingi, Þrótti R, Fram og Val.
„Ég er mjög ánægður með að mér sé sýnt áframhaldandi traust hér á Selfossi og að ég fá tækifæri til að vinna áfram með þann hóp sem við erum búin að vera að móta undanfarin tvö ár. Vissulega verða breytingar á hópnum í ljósi þess að einhverjar leggja skóna á hilluna og aðrar róa á önnur mið, en kjarninn verður að mörgu leyti sá sami,” sagði Björn við undirskriftina.

„Stelpur sem eru aldar upp í vínrauðu og verða tilbúnar að leggja á sig mikla vinnu til að koma okkur aftur á kortið á meðal þeirra bestu innan fárra ára. Það er stór hópur yngri leikmanna sem er búinn að vera að banka á dyrnar hjá meistaraflokki undanfarin ár sem munu hljóta traust til þess að taka lykilstöður í liðinu og það er gríðarlega spennandi tími framundan hjá okkur,” bætti þjálfarinn við..
Bjössi Sigurbjörns áfram á Selfossi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.