Fotbolti.net
12.10.23 - 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andri Þór í Ægi (Staðfest)

Andri Þór í Ægi (Staðfest)
Canon

Mynd: Hulda Margrét

Ægir hefur gengið frá tveggja ára samningi við Andra Þór Grétarsson sem kemur til félagsins frá KFK þar sem hann spilaði í sumar. Andri hefur glímt við erfið meiðsli en náði að spila talsvert í sumar.

Andri lék fimmtán leiki með KFK og hjálpaði liðinu að komast upp í 3. deild og undanúrslit Fótbolti.net bikarsins.
Hann verður 25 ára í næsta mánuði. Hann er uppalinn í HK og hefur á meistaraflokksferlinum einnig leikið með Aftureldingu og Kórdrengjum.

Hann lék á sínum tíma ellefu leiki fyrir unglingalandsliðin.

„er það okkur mikil ánægja að fá Andra til liðs við okkur í Ægi þar sem metnaðurinn er mikill og stefnan er sett á að vinna okkur inn sæti í Lengjudeildinni að ári," segir í tilkynningu Ægis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.