Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24449 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.07.2023, 15:09

Luis Enrique nýr stjóri PSG (Staðfest)

Luis Enrique, fyrrum stjóri Barcelona og spænska landsliðsins, hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Frakklandsmeistara Paris St-Germain. Spánverjinn tekur við af Christophe Galtier sem var rekinn þrátt fyrir að hafa unnið franska meistaratitilinn á sínu eina tímabili með stjórnartaumana.

FRÉTTIR05.07.2023, 10:53

Inigo Martínez til Barcelona (Staðfest) - Hátt riftunarákvæði

Spænski varnarmaðurinn Inigo Martínez er genginn í raðir Barcelona og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur á frjálsri sölu þar sem hann er rann út á samningi hjá Athletic Bilbao og var búið að handsala samninginn á meðan tímabilinu stóð. Í samningi Martínez er riftunarákvæði sem nemur 400 milljónum evra, Börsungar eru duglegir við að setja himinháar upphæðir í riftunarákvæðisboxið sem er hluti af samningum leikmanna.

FRÉTTIR05.07.2023, 09:47

Man Utd kynnir Mason Mount (Staðfest)

Manchester United hefur gengið frá 60 milljóna punda kaupum á enska miðjumanninum Mason Mount frá Chelsea. Hann er formlega orðinn leikmaður United og félagið tilbúið að kynna hann. Þessi 24 ára leikmaður gerði fimm ára samning á Old Trafford með möguleika á ári til viðbótar. Stefnt sé á að hann verði með í fyrsta æfingaleiknum á undirbúningstímabilinu, gegn Leeds á miðvikudaginn í næstu viku en sá leikur verður í Osló. Mount var hjá Chelsea í átján ár en þar sem hann átti eitt ár eftir af samningi ákvað félagið að selja hann til að tryggja sér peninga fyrir hann. Á ferli sínum hefur Mount unnið Meistaradeildina með Chelsea og spilað fyrir enska landsliðið á tveimur stórmótum. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem United kaupir í þessum glugga. Í tilkynningu United segir að félagið hafi lengi haft áhuga á Mount.

FRÉTTIR04.07.2023, 17:39

Farke gerir fjögurra ára samning við Leeds (Staðfest)

Daniel Farke var fyrir skemmstu tilkynntur sem nýr stjóri Leeds og gerir sá þýski fjögurra ára samning við enska félagið. Farke tekur við starfinu af Sam Allardyce sem stýrði Leeds í lok síðasta tímabils en tókst ekki að halda Leeds í úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR04.07.2023, 13:00

Collins til Brentford (Staðfest)

Nathan Collins hefur gengið í raðir Brentford frá Wolverhampton Wanderers. Hann skrifaði undir sex ára samning við félagið sem er með möguleika á að framlengja um tvö ár til viðbótar. Collins er 22 ára stór og stæðilegur miðvörður sem var hjá Úlfunum í eitt tímabil, hann kom til félagsins frá Burnley. Hann er keyptur á 23 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu Brentford.

FRÉTTIR04.07.2023, 10:30

PAOK búið að finna arftaka Sverris (Staðfest)

William Troost-Ekong er að ganga í raðir PAOK og á þessi leikmaður Watford að fylla í skarðið sem Sverrir Ingi Ingason mun skilja eftir sig. Sverrir er að ganga í raðir danska félagsins FC Midtjylland og mun þar skrifa undir fimm ára samning. Sverrir hefur verið í stóru hlutverki í Grikklandi en félagið glímir við fjárhagsörðugleika og vill lækka launakostnað sinn og því er Sverrir á förum.

FRÉTTIR04.07.2023, 10:21

Ben Brereton Díaz til Villarreal (Staðfest)

Villarreal hefur staðfest kaup á Ben Brereton Díaz frá Blackburn Rovers á frjálsri sölu. Þessi 24 ára leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við spænska félagið. Villarreal var að missa Nicolas Jackson til Chelsea en fær Sílemanninn til að fylla hans skarð. Brereton Díaz er sóknarmaður sem hefur skorað 38 mörk í 99 leikjum síðustu tvö tímabil með Blackburn í Championship-deildinni. Hann hefur spilað 20 landsleiki fyrir Síle og skorað 7 mörk. Hann býr bæði yfir hraða og krafti en auk þess að spila í fremstu víglínu þá getur hann spilað á vængnum og er góður að klára færi.

FRÉTTIR03.07.2023, 16:24

Brozovic orðinn samherji Ronaldo hjá Al-Nassr (Staðfest)

Króatíski miðjumaðurinn Marcelo Brozovic hefur gengið í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu en þar verður hann samherji Cristiano Ronaldo. Hann er keyptur á um 18 milljónir evra. Brozovic er þrítugur og var í byrjunarliði Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í júní þar sem ítalska liðið tapaði 1-0 gegn Manchester City. Hann hefur verið síðustu átta ár í ítalska boltanum. Barcelona sýndi honum áhuga núna en gat ekki jafnað tilboðið frá Sádi-Arabíu.

FRÉTTIR03.07.2023, 16:18

Al Ettifaq kynnir Gerrard sem nýjan stjóra (Staðfest)

Steven Gerrard hefur skrifað undir samning við Al Ettifaq í Sádi-Arabíu og er nýr stjóri liðsins. Í síðasta mánuði hafnaði hann tilboði frá félaginu en tók síðan U-beygju og eftir viðræður síðustu daga hefur hann ákveðið að skrifa undir. Gerrard er fyrrum leikmaður enska landsliðsins og Liverpool en hann lagði skóna á hilluna 2016.

FRÉTTIR03.07.2023, 12:08

Verbruggen til Brighton (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur fengið til sín hollenska U21 landsliðsmarkvörðinn Bart Verbruggen frá Anderlecht. Hann er tvítugur og hefur skrifað undir fimm ára samning. <i>„Ég er hæstánægður með að fá Bart. Hann er vanur því að spila fótbolta sem er keimlíkur okkar og það verður ekkert vandamál fyrir hann að passa inn í hópinn okkar,"</i> segir Roberto De Zerbi, stjóri Brighton. <i>„Hann getur orðið mjög mikilvægur leikmaður fyrir félagið á komandi árum."</i> Verbruggen varð aðalmarkvörður Anderlecht í desember, spilaði sautján leiki fyrir félagið í belgisku úrvalsdeildinni og var valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.