Kyogo búinn að framlengja við Celtic (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Japanski framherjinn Kyogo Furuhashi er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við skoska meistaraliðið Celtic.
Þetta eru afar mikilvægar fréttir fyrir Celtic sem missti kantmanninn öfluga Jota til Al-Ittihad á dögunum.
Kyogo skoraði 34 mörk í 50 leikjum á síðustu leiktíð og var Ange Postecoglou áhugasamur um að taka leikmanninn með sér til Tottenham þegar hann hætti með Celtic á dögunum til að taka við úrvalsdeildarfélaginu.
Harry Kane hefur verið sterklega orðaður við brottför frá Spurs og hefði Kyogo átt að leysa hann af hólmi samkvæmt ýmsum fjölmiðlum, en svo fór ekki.
„Það er heiður fyrir mig að framlengja dvöl mína hjá þessu ótrúlega félagi um fjögur ár. Ég er ótrúlega ánægður að spila fyrir þetta æðislega félag," sagði Kyogo meðal annars við undirskriftina.


