Fotbolti.net
05.07.23 - 09:47
Elvar Geir Magnússon

Man Utd kynnir Mason Mount (Staðfest)

Mason Mount er orðinn leikmaður Manchester United.

Mason Mount er orðinn leikmaður Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur gengið frá 60 milljóna punda kaupum á enska miðjumanninum Mason Mount frá Chelsea. Hann er formlega orðinn leikmaður United og félagið tilbúið að kynna hann.

Þessi 24 ára leikmaður gerði fimm ára samning á Old Trafford með möguleika á ári til viðbótar. Stefnt sé á að hann verði með í fyrsta æfingaleiknum á undirbúningstímabilinu, gegn Leeds á miðvikudaginn í næstu viku en sá leikur verður í Osló.

Mount var hjá Chelsea í átján ár en þar sem hann átti eitt ár eftir af samningi ákvað félagið að selja hann til að tryggja sér peninga fyrir hann.

Á ferli sínum hefur Mount unnið Meistaradeildina með Chelsea og spilað fyrir enska landsliðið á tveimur stórmótum. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem United kaupir í þessum glugga.

Í tilkynningu United segir að félagið hafi lengi haft áhuga á Mount.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.