Firmino kominn til Al-Ahli (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Sádí-Arabíska félagið Al-Ahli er búið að staðfesta félagsskipti Roberto Firmino til félagsins.
Firmino kemur á frjálsri sölu eftir 111 mörk og 79 stoðsendingar í 362 leikjum með Liverpool.
Brasilíski sóknarmaðurinn gerir þriggja ára samning við Al-Ahli og mun spila þar með Edouard Mendy, fyrrum markverði Chelsea sem var keyptur til Arabíu á dögunum. Al-Ahli hefur einnig reynt að krækja í Franck Kessie og Romelu Lukaku í sumar en án árangurs.
Það verður áhugavert að fylgjast með öllum þessum stórstjörnum reyna fyrir sér í Sádí-Arabíu, en Firmino er 31 árs gamall og hefur skorað 17 mörk í 55 landsleikjum með Brasilíu.
Firmino er elskaður og dáður af stuðningsmönnum Liverpool en nú er kominn tími til að róa á önnur mið.
Si Señor ????????#WelcomeFirmino
— Al-Ahli Saudi Club (@ALAHLI_FCEN) July 4, 2023
pic.twitter.com/w0k9ell39A


