Fotbolti.net
04.07.23 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Collins til Brentford (Staðfest)

Collins er keyptur á 23 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu Brentford.

Collins er keyptur á 23 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu Brentford.

Canon

Mynd: Getty Images

Nathan Collins hefur gengið í raðir Brentford frá Wolverhampton Wanderers. Hann skrifaði undir sex ára samning við félagið sem er með möguleika á að framlengja um tvö ár til viðbótar.

Collins er 22 ára stór og stæðilegur miðvörður sem var hjá Úlfunum í eitt tímabil, hann kom til félagsins frá Burnley.

Hann er keyptur á 23 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu Brentford.
Collins hefur spilað fjórtán landsleiki fyrir Írland og var nýlega valinn leikmaður ársins af írska fótboltasambandinu.

„Það er mikið gleðiefni að fá Nathan. Hann er mjög hæfileikaríkur miðvörður og enn á besta aldri. Hann er afskaplega yfirvegaður varnarmaður og góður með boltann í fótunum," segir Thomas Frank, stjóri Brentford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.