Fotbolti.net
04.07.23 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

PSG neyddist til að kaupa Ekitike (Staðfest) - Falur í sumar

PSG neyddist til að kaupa Ekitike (Staðfest) - Falur í sumar
Canon

Mynd: EPA

Paris Saint-Germain er búið að ganga frá kaupum á sóknarmanninum Hugo Ekitike sem lék með félaginu á láni á síðustu leiktíð með kaupskyldu, sem neyddi PSG til kaupanna.

Ekitike er 21 árs gamall og skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar í 25 leikjum á láni hjá PSG á síðustu leiktíð, en það þykir ekki nógu gott þar á bæ. PSG vill lána leikmanninn út fyrir haustið til að gefa honum betra tækifæri til að sanna sig, en er einnig opið fyrir því að selja hann á réttu verði.

Hjá Reims var Ekitike duglegur að skora mörk en honum tókst ekki að hrífa þjálfarateymið hjá PSG. 

Ekitike, sem á sjö leiki að baki fyrir U20 landslið Frakka, er samningsbundinn PSG til 2027.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.