Brozovic orðinn samherji Ronaldo hjá Al-Nassr (Staðfest)

Brozovic yfirgefur Inter.

Mynd: EPA

Brozovic yfirgefur Inter.

Mynd: EPA
Króatíski miðjumaðurinn Marcelo Brozovic hefur gengið í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu en þar verður hann samherji Cristiano Ronaldo. Hann er keyptur á um 18 milljónir evra.
Brozovic er þrítugur og var í byrjunarliði Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í júní þar sem ítalska liðið tapaði 1-0 gegn Manchester City.
Hann hefur verið síðustu átta ár í ítalska boltanum. Barcelona sýndi honum áhuga núna en gat ekki jafnað tilboðið frá Sádi-Arabíu.

Hjá Inter vann Brozovic ítalska meistaratitilinn einu sinni og ítalska bikarinn tvisvar. Hann var í króatíska landsliðinu sem endaði í öðru sæti á HM í Rússlandi 2018 endaði í þriðja sæti í Katar fjórum árum síðar.
Brozovic bætist í hóp leikmanna sem færa sig yfir í deildina í Sádi-Arabíu. Karim Benzema, Ruben Neves, Kalidou Koulibaly, N'Golo Kante og Edouard Mendy eru meðal leikmanna sem hafa farið þangað í sumar.

????? ???? ???? .. ??? ????? ????? ????#????????_??????#Brozovi?IsYellow ???? pic.twitter.com/SlC58Ekm2h
— ???? ????? ??????? (@AlNassrFC) July 3, 2023