Fotbolti.net
04.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Einn besti bakvörður La Liga til Atlético (Staðfest)

Einn besti bakvörður La Liga til Atlético (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Atlético Madríd hefur klófest spænska vinstri bakvörðinn Javi Galan frá Celta Vigo og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Madrídarliðið.
Galan, sem er 28 ára, var einn af betri vinstri bakvörðum La Liga á síðustu leiktíð er Celta hafnaði í 13. sæti deildarinnar.

Hann vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína og hefur nú verið verðlaunaður fyrir hana. Galan fékk meðal annars tilnefningu fyrir lið tímabilsins.

Atlético Madríd festi kaup á Galan í dag fyrir 5 milljónir evra og skrifaði hann undir þriggja ára samning.

Galan er fyrsti leikmaðurinn sem Atlético fær í þessum glugga en svo sannarlega ekki sá síðasti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.