Fotbolti.net
04.07.23 - 10:21
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Ben Brereton Díaz til Villarreal (Staðfest)

Brereton Díaz er kominn um borð í Gula kafbátinn.

Brereton Díaz er kominn um borð í Gula kafbátinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Villarreal hefur staðfest kaup á Ben Brereton Díaz frá Blackburn Rovers á frjálsri sölu. Þessi 24 ára leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við spænska félagið.

Villarreal var að missa Nicolas Jackson til Chelsea en fær Sílemanninn til að fylla hans skarð.

Brereton Díaz er sóknarmaður sem hefur skorað 38 mörk í 99 leikjum síðustu tvö tímabil með Blackburn í Championship-deildinni. Hann hefur spilað 20 landsleiki fyrir Síle og skorað 7 mörk.

Hann býr bæði yfir hraða og krafti en auk þess að spila í fremstu víglínu þá getur hann spilað á vængnum og er góður að klára færi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.