Fotbolti.net
03.07.23 - 12:08
Elvar Geir Magnússon

Verbruggen til Brighton (Staðfest)

Bart Verbruggen.

Bart Verbruggen.

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur fengið til sín hollenska U21 landsliðsmarkvörðinn Bart Verbruggen frá Anderlecht.

Hann er tvítugur og hefur skrifað undir fimm ára samning.

„Ég er hæstánægður með að fá Bart. Hann er vanur því að spila fótbolta sem er keimlíkur okkar og það verður ekkert vandamál fyrir hann að passa inn í hópinn okkar," segir Roberto De Zerbi, stjóri Brighton.

„Hann getur orðið mjög mikilvægur leikmaður fyrir félagið á komandi árum."

Verbruggen varð aðalmarkvörður Anderlecht í desember, spilaði sautján leiki fyrir félagið í belgisku úrvalsdeildinni og var valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.