Fotbolti.net
05.07.23 - 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Inigo Martínez til Barcelona (Staðfest) - Hátt riftunarákvæði

Inigo Martínez til Barcelona (Staðfest) - Hátt riftunarákvæði
Canon

Mynd: Barcelona

Spænski varnarmaðurinn Inigo Martínez er genginn í raðir Barcelona og skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Hann kemur á frjálsri sölu þar sem hann er rann út á samningi hjá Athletic Bilbao og var búið að handsala samninginn á meðan tímabilinu stóð.

Í samningi Martínez er riftunarákvæði sem nemur 400 milljónum evra, Börsungar eru duglegir við að setja himinháar upphæðir í riftunarákvæðisboxið sem er hluti af samningum leikmanna.
Martínez er 32 ára og hefur alla tíð þar til nú spilað í Baskahéraði; fyrst með Real Sociedad og svo síðustu fimm ár með Athletic.

Miðvörðurinn á að baki 20 landsleiki fyrir Spán og átta fyrir Baskaland. Hann var í byrjunarliði Spánar í 2-0 tapinu gegn Skotlandi í mars en missti af leikjunum í síðasta mánuði vegna meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.