PAOK búið að finna arftaka Sverris (Staðfest)

Troost-Ekong fagnar marki með Salernitana þar sem hann var á láni í vetur.

Mynd: EPA

William Troost-Ekong er að ganga í raðir PAOK og á þessi leikmaður Watford að fylla í skarðið sem Sverrir Ingi Ingason mun skilja eftir sig. Sverrir er að ganga í raðir danska félagsins FC Midtjylland og mun þar skrifa undir fimm ára samning.
Sverrir hefur verið í stóru hlutverki í Grikklandi en félagið glímir við fjárhagsörðugleika og vill lækka launakostnað sinn og því er Sverrir á förum.

Troost-Ekong er 29 ára gamall Nígeríumaður sem hefur verið á mála hjá Watford síðustu þrjú ár. Hann er uppalinn hjá Fulham og Tottenham en hóf feril sinn í Hollandi.
Watford fær eina milljón evra fyrir leikmanninn en PAOK fær tæplega fjórar fyrir söluna á Sverri.
Troost-Ekong er ekki eini leikmaðurinn sem PAOK fær frá Englandi því Ganverjinn Baba Rahman er einnig á leiðinni. Vinstri bakvörðurinn kemur á frjálsri sölu frá Chelsea þar sem samningur hans var að renna út.