Fotbolti.net
05.07.23 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Galtier hættur hjá PSG (Staðfest) - Enrique tekur við

Galter hefur yfirgefið PSG.

Galter hefur yfirgefið PSG.

Canon

Mynd: EPA

Franska stórliðið Paris Saint-Germain hefur staðfest að stjórinn Christophe Galtier hafi látið af störfum hjá félaginu. Hann var nákvæmlega eitt ár í starfi.
Galtier stýrði Lille til franska meistaratitilsins 2021 og endurtók leikinn með PSG á liðnu tímabili en er látinn fara eftir enn ein vonbrigði félagsins í Meistaradeildinni.

Bayern München sló PSG út í 16-liða úrslitum á liðnu tímabili.

Luis Enrique verður kynntur sem nýr stjóri PSG en hann hætti sem landsliðsþjálfari Spánar eftir HM í Katar. Hann er fyrrum stjóri Barcelona.
Luis Enrique tekur við.

Luis Enrique tekur við.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.