Fotbolti.net
03.07.23 - 18:34
Brynjar Ingi Erluson

Stefán Ingi til Patro Eisden (Staðfest)

Stefán Ingi Sigurðarson er hér með Ólafi Garðarssyni (t.h.), umboðsmanni sínum ásamt yfirmanni íþróttamála hjá Patro Eisden

Stefán Ingi Sigurðarson er hér með Ólafi Garðarssyni (t.h.), umboðsmanni sínum ásamt yfirmanni íþróttamála hjá Patro Eisden

Canon

Mynd: Aðsend

Belgíska B-deildarfélagið Patro Eisden hefur formlega gengið frá kaupum á Stefáni Inga Sigurðarsyni frá Breiðabliki.
Blikinn lék sinn síðasta leik fyrir uppeldisfélagið á föstudag er það kom sér upp úr umspilinu í forkeppni Meistaradeildarinnar og auðvitað kvaddi hann með marki.

Hann hélt í kjölfarið út til Belgíu og gekkst undir læknisskoðun áður en hann skrifaði undir hjá Patro Eisden, en hlutirnir hafa gerst hratt hjá þessum efnilega framherja.

Stefán, sem er 22 ára, var markahæsti maður Bestu deildarinnar með 10 mörk áður en hann fór til Patro Eisden.

Belgíska félagið kynnti hann á samfélagsmiðlum í kvöld en hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.