Fotbolti.net
05.07.23 - 15:09
Elvar Geir Magnússon

Luis Enrique nýr stjóri PSG (Staðfest)

Luis Enrique með PSG treyjuna.

Luis Enrique með PSG treyjuna.

Canon

Mynd: PSG

Luis Enrique, fyrrum stjóri Barcelona og spænska landsliðsins, hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Frakklandsmeistara Paris St-Germain.

Spánverjinn tekur við af Christophe Galtier sem var rekinn þrátt fyrir að hafa unnið franska meistaratitilinn á sínu eina tímabili með stjórnartaumana.
Enrique er 53 ára og hætti sem þjálfari spænska landsliðsins eftir HM í Katar. Hann var valinn þjálfari ársins af FIFA 2015.

„Ég er hæstánægður með að vera kominn til Parísar og öðlast nýja reynslu hér. Ég er svo spenntur fyrir því að kynnast nýju fólki, búa í þessari borg, læra tungumálið og umfram allt að þjálfa PSG," segir Enrique.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.