Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.11.2022, 15:30

FH styrkir sig - Sara Montoro og Berglid Þrastar skrifa undir (Staðfest)

FH er að styrkja sig fyrir átökin í Bestu deildinni næsta sumar. Þær Sara Montoro og Berglind Þrastardóttir hafa báða skrifað undir þriggja ára samning við liðið. Sara er 19 ára framherji sem kemur til FH frá Fjölni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sara spilað 91 KSÍ leik og skorað 51 mark. Sara hefur svo einnig spilað þrjá unglingalandsleiki og skorað í þeim eitt mark.

FRÉTTIR21.11.2022, 13:30

Bjarni Gunnarsson yfirgefur HK (Staðfest)

Bjarni Gunnarsson hefur kvatt HK, honum var þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og óskað velfarnaðar í framtíðinni í færslu á samfélagsmiðlum í gær. Bjarni spilaði 110 leiki fyrir HK og skoraði í þeim 35 mörk. Undanfarin þrjú tímabil hefur Bjarni lítið getað spilað, einungis komið við sögu í átján deildarleikjum.

FRÉTTIR21.11.2022, 11:55

Telmo yfirgefur ÍBV líkt og Sito (Staðfest)

ÍBV hefur tilkynnt að miðjumaðurinn Telmo Castanheira hafi ákveðið að hafna samningstilboði félagsins og ætli að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi. Fyrir viku síðan <a href="https://fotbolti.net/news/14-11-2022/sito-yfirgefur-ibv-stadfest" target="_blank">var staðfest</a> að Sito myndi yfirgefa Vestmannaeyjar og nú fylgir Telmo í hans spor.

FRÉTTIR21.11.2022, 10:37

Van Bronckhorst rekinn frá Rangers (Staðfest)

Rangers hefur rekið Giovanni van Bronckhorst úr starfi eftir eitt ár sem stjóri hjá félaginu. Rangers er níu stigum á eftir toppliði Celtic í titilbaráttunni. Van Bronckhorst tók við í nóvember í fyrra eftir að Steven Gerrard var ráðinn til Aston Villa. Á síðustu leiktíð fór Rangers alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar auk þess að verða bikarmeistari.

FRÉTTIR21.11.2022, 10:27

Selfoss fær unglingalandsliðskonu (Staðfest)

Selfoss hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna á næsta tímabili. Unglingalandsliðskonan Lilja Björk Unnarsdóttir hefur fengið félagaskipti til félagsins frá Álftanesi. Lilja er sextán ára og skipti í Álftanes frá ÍA í sumar. Hún á að baki níu deildarleiki á sínum ferli og tvo bikarleiki. Þá á hún að baki sex leiki með U16 og þrjá með U17.

FRÉTTIR19.11.2022, 22:47

Benzema ekki með á HM (Staðfest) - Áfall fyrir Frakka

Heimsmeistarar Frakklands hafa orðið fyrir miklu áfalli en ljóst er að sóknarmaðurinn Karim Benzema, handhafi Ballon d'Or gullknattarins, tekur ekki þátt á mótinu. Benzema tognaði á vinstra læri á æfingu. Hinn 34 ára gamli Benzema átti að vera ein skærasta stjarna HM en mótið hefst á morgun. Hann hafði verið að glíma við meiðsli í aðdraganda mótsins og var notaður sparlega af Real Madrid. Olivier Giroud mun því fá það verkefni að leiða sóknarlínu Frakka á mótinu. Hann hefur skorað níu mörk og átt fimm stoðsendingar með AC Milan á þessu tímabili. Frakkar eiga leik á mánudaginn gegn Áströlum en meiðslavandræði hafa sett mikið strik í reikninginn hjá Didier Deschamps og hans mönnum. Lykilmenn eins og N'Golo Kante og Paul Pogba gátu ekki farið með á mótið og þá meiddist Christopher Nkunku á síðustu æfingu franska landsliðsins áður en ferðinni var heitið til Katar.

FRÉTTIR18.11.2022, 12:32

Bjarni Páll yfirgefur HK (Staðfest)

Bjarni Páll Linnet Runólfsson verður ekki með HK í Bestu deildinni á komandi tímabili. HK tilkynntir þetta með kveðju á samfélagsmiðlum. <i>„Við þökkum Badda fyrir sitt framlag til HK og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni,"</I> segir í færslu HK.

FRÉTTIR17.11.2022, 16:57

Rob Edwards tekinn við Luton (Staðfest)

Rob Edwards, fyrrum stjóri Watford og fyrrum þjálfari enska U16 landsliðsins, hefur verið ráðinn nýr stjóri Luton Town. Luton er í Championship deildinni og þurfti að fá inn nýjan stjóra eftir að Southampton réði Nathan Jones til sín. Edwards verður fertugur í næsta mánuði og er frá Telford á Englandi. Hann lék m.a. með Aston Villa, Wolves og Blackpool á sínum ferli og lék þá 15 landsleiki fyrir Wales.

FRÉTTIR17.11.2022, 16:30

Curtis Jones hjá Liverpool til 2027 (Staðfest)

Curtis Jones hefur skrifað undir nýjan samning við Liverpool og er nú samningsbundinn fram á sumarið 2027. Jones, sem er uppalinn hjá félaginu, var með samning í gildi sem hefði runnið út sumarið 2027 og framlengir því um tvö ár. Þann samning skrifaði hann undir í júlí 2020 en Liverpool vildi verðlauna leikmanninn fyrir þróunina undanfarin tvö ár.

FRÉTTIR16.11.2022, 18:43

Shaina Ashouri snýr aftur til FH (Staðfest)

<p>Shaina Faiena Ashouri er búin að skrifa undir samning við FH eftir að hafa aðeins leikið hálft tímabilið með liðinu í sumar. Hún fékk ekki að leika á seinni hluta tímabilsins vegna synjun á atvinnuleyfi frá útlendingastofnun - án frekari útskýringa.</p>

FRÉTTIR16.11.2022, 11:25

Sindri Kristinn í FH (Staðfest) - „Erfitt að skilja við Keflavík"

Sindri Kristinn Ólafsson er genginn í raðir FH og gerir þriggja ára samning við félagið. Þetta staðfestir hann í samtali við <a href="https://www.vf.is/ithrottir/thad-verdur-askorun-fyrir-mig-ad-syna-ur-hverju-eg-er-gerdur" target="_blank"><i>Víkurfréttir</I>.</a> Sindri, sem er 25 ára markvörður, hefur allan sinn feril leikið með Keflavík. Samningur hans við félagið rann út eftir nýliðið tímabil og ákvað hann að söðla um og fara í FH. Í haust var hann einnig orðaður við KR og KA.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.