Þorleifur flytur aftur til Bandaríkjanna (Staðfest)
Þorleifur Úlfarsson er fluttur aftur til Bandaríkjanna þar sem hann er búinn að skrifa undir samning við Loudoun United.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24389 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þorleifur Úlfarsson er fluttur aftur til Bandaríkjanna þar sem hann er búinn að skrifa undir samning við Loudoun United.
Það hefur verið ýmislegt að frétta hjá FHL í vetur þar sem félagið er meðal annars búið að ráða inn nýjan aðstoðarþjálfara og styrktarþjálfara, auk þess að semja við mikilvæga leikmenn.
Höttur er búinn að krækja sér í vænlegan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deildinni.
Fram er búið að krækja í Kristu Dís Kristinsdóttur úr röðum Þórs/KA og er hún annar leikmaðurinn sem liðið staðfestir á skömmum tíma eftir komu Löru Margrétar Jónsdóttur úr röðum Tindastóls.
Kvennalið Vestra á Ísafirði er búið að styrkja sig gríðarlega fyrir komandi átök næsta keppnistímabils.
Skoska stórveldið Rangers er búið að krækja í öflugan kantmann til að styrkja hópinn sinn fyrir seinni hluta tímabils.
Ítalska félagið Atalanta er búið að festa kaup á framherjanum knáa Giacomo Raspadori sem kemur úr röðum Atlético Madrid.
Guðmundur Þórarinsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við ÍA og mun því leika í Bestu deildinni á næstu misserum eftir tæplega 14 ára fjarveru.
Claudio Echeverri er genginn til liðs við Girona á láni frá Man City. Man City nældi í þennan 19 ára gamla Argentínumann frá River Plate í janúar 2024 en hann var á láni hjá argentíska félaginu í eitt ár. Hann kom við sögu í þremur leikjum fyrir Man City áður en hann var lánaður til Leverkusen í sumar. Hann fékk fá tækifæri hjá þýska liðinu og var kallaður til baka í þessum mánuði.
Lara Margrét Jónsdóttir er gengin til liðs við Fram en hún skrifar undir samning út 2027. Hún mun einnig þjálfa í yngri flokkum félagsins. Lara er 25 ára gömul og spilar sem varnarmaður hún kemur til liðsins frá Tindastól.
Paragvæinn Alfredo Sanabria er genginn til liðs við Ægi frá Selfoss en þetta kemur fram í tilkynningu Ægismanna.
Sænski miðjumaðurinn Jacob Stensson hefur gert tveggja ára samning við bikarmeistara Vestra en hann kemur til félagsins frá Brage í heimalandinu.
Keflvíkingurinn Ari Steinn Guðmundsson er farinn frá uppeldisfélaginu en þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum á dögunum.
KR hefur samið við tvo Ganverja til næstu þriggja ára. Það eru þeir Fuseini Issah og Fredrick Delali. Fuseini er fæddur árið 2005 en hann er sókknarmaður sem getur leyst allar fremstu stöðurnar. Frederick er fæddur árið 2007 en hann er djúpur miðjumaður.
Roma hefur staðfest að félagið hafi komist að samkomulagi við Edoardo Bove um að rifta samningi miðjumannsins. Bove er 23 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Roma en hann spilaði á láni hjá Fiorentina á síðustu leiktíð.
Inga Ragnarsdóttir er gengin til liðs við ÍR frá ÍA. Hún er markvörður og er uppalin hjá Val. Hún er fædd árið 2006 en hún færði sig yfir til Víkings í 2. flokki. Hún var á láni á Skaganum síðasta sumar og spilaði með liðinu i Lengjudeildinni.
Víðir hefur samið við spænska framherjan Nicolás López fyrir átökin í 3. deild næsta sumar. Hann er 24 ára gamall og hefur spilað í Króatíu undanfarið. Hann var m.a á mála hjá Valencia á sínum yngri árum. Þá spilaði hann í bandaríska háskólaboltanum í fjögur ár þar sem hann skoraði 62 mörk í 66 leikjum.
Bologna hefur staðfest kaupin á norska varnarmanninum Eivind Helland frá Brann. Kaupverðið er rúmlega 8 milljónir evra en hann er dýrasti leikmaður sem Brann hefur selt. Áður var Aune Heggebo sá dýrasti en hann gekk til liðs við West Brom fyrir 5,5 milljónir evra í fyrra.
Sunderland hefur nælt í Fílabeinsstrendinginn Jocelin Ta Bi frá Maccabi Netanya frá Ísrael. Enska félagið borgar rúmlega 3 milljónir punda og hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2030. Sunderland hefur möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, hefur staðfest að hann muni yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út. Austurríkismaðurinn hefur gert magnaða hluti með Palace en hann stýrði liðinu til síns fyrsta stóra titils þegar þeir unnu Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins í fyrra. Með sigrinum kom Glasner liði Palace í Sambandsdeildina og þá vann liðið Samfélagsskjöldinn í ágúst, með því að leggja Liverpool eftir vítakeppni. Glasner er samkvæmt veðbönkum talinn mjög líklegur til að verða stjóri Manchester United í sumar. Hann segist hafa ákveðið að yfirgefa Palace til að takast á við nýja áskorun á ferlinum en að hann hafi ekki talað við neitt félag. <i>„Ákvörðunin var tekin fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég fundaði með Steve Parish (stjórnarformanni og eiganda) í landsliðsglugganum í október. Við töluðum lengi saman og ég tjáði honum að ég myndi ekki gera nýjan samning,"</i> segir Glasner.