Fotbolti.net
01.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Félagsskiptaglugginn opinn.

Stóri dagurinn er runninn upp. Það gerist bara tvisvar á ári og í dag hefst fyrra skiptið sem félagsskiptaglugginn í Evrópuboltanum opnar. Nú geta liðin í Evrópu byrjað að versla með leikmenn út þennan mánuð og má búast við miklu fjöri eins og í fyrra. Stærsta nafnið sem líklega mun finna sér félag i janúar hlýtur að vera Brasilíumaðurinn Rivaldo sem er orðinn samningslaus eftir að samningi hans við AC Milan var rift. Þá er talið líklegt að Edgar Davids miðvallarleikmaður Juventus skipti um félagið en Juve mun hafa boðið enskum félugum hann að láni til hálfsárs en þá rennur samningur hans við félagið út.
Við hér á Fótbolti.net munum verða vel vakandi og flytja ykkur staðfestar fréttir af félagsskiptamarkaðnum en freistumst þó líka til að segja helsta slúðrið úr ensku blöðunum en athugið að vel verður greint á milli slúðurs, vangaveltna og staðfestra fréttra. Til dæmis má benda á að þegar leikmaður gengur til liðs við félag og félagsskiptin eru orðin staðfest þá má alltaf búast við að lesa orðið (STAÐFEST) innan sviga en slúðrið birtist allt í frétt sem nefnist ,,Slúðurpakki dagsins".

Hér að neðan eru pælingar um hvað liðin í ensku úrvalsdeildinni munu gera. Listinn er fenginn frá Guardian.


Arsenal:
Peningar komu inn þegar félagið fékk lán vegna byggingu nýja leikvangsins en Arsene Wenger er svo ánægður með hvernig ungu leikmennirnir stóðu sig í Carling Cup að hann ætlar ekki að eyða neinum peningum í vetur.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Enginn

Ímynduð takmörk: Jermaine Defoe framherji WEst Ham, Jose Rayes framherji Sevilla, Robin van Persie framherji Feyenoord.


Aston Villa:
David O´Leary vill styrkja hópinn sem er einn sá minnsti í deildinni. Hann hefur til þess 3 milljónir punda.


Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Michael Bridges framherji Lees United, Sean Thornton miðvallarleikmaður Sunderland, Mark Viduka framherji Leeds United, Alan Smith framherji Leeds.

Ímynduð takmörk: Muzzy Izzet miðvallarleikmaður Leicester


Birmingham:

Steve Bruce er að leita að framherja og bakverði til að leysa stöður Christophe Dugarry og Jamie Clapham sem eru meiddir.

Pottþétt takmörk: Mikael Forssell framherji í eigu Chelsea.

Líkleg takmörk: Andy Griffin varnarmaður Newcastle, Alexei Eremenko miðvallarleikmaður Helsinki.

Ímynduð takmörk: Henrik Larsson framherji Celtic


Blackburn:
Peningunum fyrir sölunni á Damien Duff hefur verið eytt en þó enn sé verið að leita að eftirmanni hans.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Brian McBride framherji Columbus Crew, Julian Gray miðvallarleikmaður Crystal Palace.

Ímynduð takmörk: Marc Overmars miðvallarleikmaður Barcelona, Andy Reid miðvallarleikmaður Nottingham Forest, Alex mioðvallarleikmaður Shimizu S-Pulse.


Bolton:
Sam Allardyce hefur litla eða enga peninga til að eyða og mun einbeita sér að góðum lánsmönnum sem taka há laun.

Pottþétt takmörk: Donovan Ricketts markvörður Village United.

Líkleg takmörk: Eyal Berkovic miðvallarleikmaður Man City.

Ímynduð takmörk: Sylvain Wiltord framherji Arsenal.


Charlton:
Í kjölfar margra meiðsla var Paul Koncheskey kallaður aftur frá Tottenham og Alan Curbishley verður að treysta á lánsmenn og fría menn.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Enginn

Ímynduð takmörk: Darren Purse varnarmaður Birmingham, Petri Pasanen varnarmaður Ajax.


Chelsea:
Það ættu að vera allavega 80 milljónir punda eða svo tí boði fyrir Claudio Ranieri en Ítalinn gæti valið að breyta ekki liði sínu í bili.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Lucio varnarmaður Bayer Leverkusen, Sebastian Frey markvörður Parma, Roberto Ayala varnarmaður Valencia, Jose Reyes og Adriano framherji Parma.

Ímynduð takmörk: Jermain Defoe frá West Ham, Luis Figo miðvallarleikmaður Real Madrid, David Trezeguet framherji Juventus, Michael Ballack miðvallarleikmaður Bayern Munchen.


Everton:
Jafnvel Bill Kenwright mun berjast við að eiga peninga í næsta mánuði og David Moyes verður að vinna með það sem hann hefur.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Stephen Pearson miðvallarleikmaður Motherwell, Christian Bassilla varnarmaður Strasbourg.

Ímynduð takmörk: Jason Koumas miðvallarleikmaður WBA, Sean Davis miðvallarleikmaður Fulham.


Fulham:
Ófyrirséð góð framkoma Fulham hefur leitt til þess að Chris Coleman fær peninga til að eyða í janúar. Hann ætlar að nota þá aura.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Olivier Kapo framherji Auxerre, Robert Earnshaw framherji Cardiff, Bobby Petta miðallarleikmaður Celtic.

Ímynduð takmörk: Dado Prso framherji Monaco.


Leeds:
Enginn peningur, þeir myndu vilja miðvörð en verða að treysta á skiptidíl, það er að segja ef þeir verða enn til eftir 19. janúar!

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Enginn

Ímynduð takmörk: Enginn


Leicester:
Micky Adams vill styrkja hópinn en enginn peningur er í boði nema einhver kaupi Muzzy Izzet sem verður samningslaus í júní. Ef ekki þá verður Adams að treysta á lánssamninga og fríar sölur.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Alexei Eremenko, Bryan Hughes miðvallarleikmaður Birmingham.

Ímynduð takmörk: Nicky Butt.


Liverpool:
Gerard Houllier hefur sagt að hann ætli að vinna með það sem han hefur auk þess sem ólíklegt er að stjórnin vilji eyða meiri peningum áður en ljóst verður hvort liðið komist í Meistaradeildina.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Logan Bailly markvörður Genk.

Ímynduð takmörk: Djibril Cisse framherji Auxerre, Mark Overmars frá Barcelona.


Man City:
Lítið er til af peningum en eitthvað þó og markvörður er efstur á óskalistanum.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Rab Douglas markvörður Celtic, Robert Green markvörður Norwich.

Ímynduð takmörk: Nicky Butt miðvallarleikmaður Man Utd


Man Utd:
Sir Alex Ferguson ætlar sér að kaupa leikmann sem getur spilað í Meistaradeildinni. Peningurinn er til og efst á óskalistanum er framherji og líklega verður leitað að eftimanni Rio Ferdinand.

Pottþétt takmörk: Dong Fangzhou framherji Dalian Shide

Líkleg takmörk: Daniel van Buyten varnarmaður Marseille, Vincent Kompany varnarmaður Anderlecht, Louis Saha framherji Fulham, Jermain Defoe framherji West Ham, Mark Viduka framherji Leeds og Liam Miller miðvallarleikmaður Celtic.

Ímynduð takmörk: Deco framherji Porto.


Middlesbrough:
Steve McClaren bráðvantar framherja en finna rétta manninn sem gæti skorað fyrir Boro.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Andy Cole framherji Blackburn.

Ímynduð takmörk: Diego Forlan framherji Man Utd.


Newcastle:
Talið er að Bobby Robson hafi 5-6 milljónir til að eyða auk þess sem hann ætlar að reyna að selja eitthvað í leiðinni. Leitar frekar eftir mönnum sem geta spilað í UEFA Cup.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Alan Smith framherji Leeds, Stephen Carr varnarmaður Tottenham.

Ímynduð takmörk: Patrick Kluivert framherji Barcelona.



Portsmouth:
Harry Redknapp mun leita að fríum leikmönnum og lánsmönnum til að taka stöðu meiddra leikmanna.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Nigel Reo-Coker miðjumaður Wimbledon, Richard Duffy varnarmaður Swansea.

Ímynduð takmörk: Adrian Ilie framherji Alaves, Igor Mitrevski varnarmaður Sparak Moscow.


Southampton:
Það gætu orðið breytingar á miðjumönnum Southampton eftir að Fabrice Fernandes og Anders Svensson báðu um að fá að fara. Sölur þeirra gætu orðið til þess að fleiri væru keyptir.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Javier de Pedro miðjumaður Real Sociedad, Martin Rowlands miðjumaður QPR.

Ímynduð takmörk: Enginn.


Tottenham:
15 milljón punda tilboð hefur verið tekið til að bjarga Tottenham úr krísunni sem þeir eru í.

Pottþétt takmörk: Michael Brown miðvalarleikmaður Sheffield United.

Líkleg takmörk: Petr Cech markvörður Rennes, Daniel Pizarro miðjumaður Udinese4, Owen Hargreaves miðjumaður Bayern Munchen

Ímynduð takmörk: Jay-Jay Okocha framherji Bolton, Nicky Butt miðvallarleikmaður Man Utd, Scott Parker miðjumaður Charlton, Rivaldo.


Wolves:
Dave Jones verður að bæta liðið og vill fá framherja, miðvörð og markvörð en þar sem enginn vill kaupa hlut Sir Jack Hayward í félaginu geta þeir aðeins eytt 2 milljónum punda.

Pottþétt takmörk: Enginn

Líkleg takmörk: Chris Marsden miðjumaður Southampton, Marc Bircham miðjumaður QPR og Ion Ganea sem er samningslaus framherji.

Ímynduð takmörk: Martin Keown varnarmaður Arsenal og Dean Ashton framherji Crewe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.