01.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Martin Andersen til Blackburn (Staðfest)

Souness er að liðsstyrk.


Souness er að liðsstyrk.

Blackburn Rovers hefur fengið norska miðjumanninn Martin Andresen að láni út þessa leiktíð frá Stabæk. Andresen sem var leikmaður ársins í Noregi á seinustu leiktíð var til reynslu hjá Blackburn í seinasta mánuði og ákvað Graeme Souness stjóri liðsins að fá hann að láni út þessa leiktíð. Souness vil fá Andresen þar sem að hann á í miðjuvandræðum en bæði David Thompson og Barry Ferguson verða frá út tímabilið vegna meiðsla.
Andresen er þriðji leikmaðurinn sem Souness fær í janúar en fyrr í mánuðinum fékk hann markvörðinn Peter Enckelman og varnarmanninn Michael Gray.
