Fotbolti.net
01.03.20 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Inter neitaði að spila við Juve - Gætu frestað leik morgundagsins

Kóróna veirunni hefur tekist að lama ítalska boltann.

Kóróna veirunni hefur tekist að lama ítalska boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Stjórn ítalska knattspyrnusambandsins og Serie A hefur verið gagnrýnd harðlega á Ítalíu fyrir að fresta svo mörgum leikjum vegna kóróna veirunnar.
Fimm leiki átti að spila fyrir luktum dyrum um helgina en ákveðið var að fresta þeim til að 'skaða ekki ímynd' Serie A. Stórleikur Juventus og Inter átti til að mynda fara fram en hefur nú verið frestað.

Þessi rökstuðningur hefur fengið mikla gagnrýni en Paolo Dal Pino, forseti Serie A, segist ekki skilja alla neikvæðnina.

„Á föstudaginn stungum við upp á því að Juve og Inter myndu mætast á mánudagskvöldið til að þurfa ekki að spila fyrir luktum dyrum. Inter neitaði þeirri tillögu þannig ábyrgðin ætti að liggja hjá félaginu," sagði Dal Pino.

„Ég skil ekki alla þessa neikvæðni, það er ekki eins og þetta sé heimsendir. Ef þið horfið á ensku úrvalsdeildina þá eru oft lið sem eiga leiki
til góða útaf hinum ýmsu bikarkeppnum. Ástandið hjá okkur núna er ekki ósvipað."


Í dag munu tveir leikir fara fram. Lecce fær Atalanta í heimsókn áður en Cagliari tekur á móti Roma. Sampdoria átti að spila við Verona á morgun en útlit er fyrir að þeim leik verði einnig frestað, enda hefur öllum skólum í Genova verið lokað til að forðast frekari dreifingu veirunnar.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Napoli9+614
7Frosinone8+414
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta8-110
13Genoa9-510
14Lecce8-59
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Parma9-105
19Fiorentina8-104
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.