Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. mars 2020 14:28
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: De Gea skaut í Calvert-Lewin
Mynd: Getty Images
Everton er 1-0 yfir gegn Manchester United þessa stundina en liðin eru að mætast í Evrópubaráttu ensku úrvasldeildarinnar.

Dominic Calvert-Lewin kom Everton yfir á þriðju mínútu með ansi skrautlegu marki.

Framherjinn ungi pressaði á David De Gea sem tók sér mikinn tíma á boltanum áður en hann hreinsaði í burtu.

Spænski markvörðurinn misreiknaði sig eitthvað því hann sparkaði knettinum beint í Calvert-Lewin og þaðan fór hann í netið.

Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá markið með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner