Sverrir Páll Hjaltested kom í (gær)kvöld inn á sem varamaður í liði Vals í leiknum gegn ÍA. Sverrir er tvítugur og lék með Víkingi í yngri flokkunum.
Hann fór til Tromsö árið 2016 en kom til Íslands aftur fyrir tímabilið 2018 og fór þá Í Val. Hann lék nokkra leiki með KH sumarið 2018 og fór svo á láni til Völsungs tímabilið 2019.
Hann fór til Tromsö árið 2016 en kom til Íslands aftur fyrir tímabilið 2018 og fór þá Í Val. Hann lék nokkra leiki með KH sumarið 2018 og fór svo á láni til Völsungs tímabilið 2019.
Hann var fjarri góðu gamni allt síðasta tímabil vegna meiðsla. Sverrir sleit krossband snemma árs en sneri til baka í janúar og lék með Val á undirbúningstímabilinu.
Í kvöld lék hann svo sinn fyrsta keppnisleik fyrir Val. Hann kom inn á fyrir markaskorarann Patrick Pedersen á 79. mínútu.
„Já Almarr, sem kom frá KA fyrir tímabilið, kominn inn hjá Valsmönnum. Sverrir Páll Hjaltested, 2000 módel, einnig mættur inn. Patrick Pedersen hvíldur. Það eru margir leikir í maí!" skrifaði Elvar Geir Magnússon í textalýsingunni í kvöld.
Sverrir verðut 21 árs í sumar.
Athugasemdir