Fotbolti.net
16.09.26 - 11:12
Elvar Geir Magnússon

Dapurt að frammistaða City hafi fallið í skuggann

Enzo Maresca, stjóri City.

Enzo Maresca, stjóri City.

Canon

Mynd: EPA

Mikið hefur verið rætt og ritað um sigurmark Manchester City í grannaslagnum gegn Manchester United í borgarslagnum á sunnudaginn. Mistök voru gerð í VAR herberginu og markið ranglega látið standa.

Enzo Maresca, stjóri City, segir það dapurt að öll umræðan í kringum leikinn snúist um þetta atvik en ekki frammistöðu síns liðs.
Webb svekktur en ekki eins svekktur og dómararnir
TENGT EFNI

Webb svekktur en ekki eins svekktur og dómararnir

„Að ræða um eitt atvik í leik þar sem við spiluðum í 70-75 mínútur með tíu leikmenn er frekar dapurt. Mér fannst frammistaða okkar mögnuð og ég er mjög ánægður," segir Maresca.

Árið 2023 var Maresca aðstoðarþjálfari City þegar Bruno Fernandes skoraði mark fyrir United sem var látið standa þrátt fyrir að Marcus Rashford var rangstæður og hafði áhrif.

„Fyrir þremur árum gerðist alveg eins atvik. Enginn baðst afsökunar, við bíðum enn eftir afsökunarbeiðni. Stundum dettur svona með þér og stundum gegn þér. Þannig er fótboltinn."

City spilað manni færri stærstan hluta leiksins á sunnudag eftir rautt spjald Phil Foden.

„Í hálfleik var hann mjög leiður en það var léttara yfir honum eftir leikinn, honum var létt. Hann var mjög góður í gær. Hann gerir sér grein fyrir því að viðbrögð hans voru sennilega ekki góð en þetta mál er að baki og við horfum fram veginn," segir Maresca.
Dapurt að frammistaða City hafi fallið í skuggann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.