Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   sun 01. júní 2025 19:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Tíu leikmenn Stjörnunnar náðu í stig gegn KA
Benedikt Warén
Benedikt Warén
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 1 - 1 Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén ('35 )
1-1 Ásgeir Sigurgeirsson ('88 )
Rautt spjald: Alex Þór Hauksson , Stjarnan ('38) Lestu um leikinn

KA og Stjarnan skildu jöfn á Akureyri í dag en Stjörnumenn voru manni færri allan seinni hálfleikinn.

KA fékk gott tækifæri til að komast yfir snemma leiks en Ásgeir Sigurgeirsson átti skalla og boltinn fór beint á Árna í marki Stjörnunnar.

Stuttu síðar náði Hinrik Brink að koma boltanum framhjá William Tönning en Hans Viktor Guðmundsson mætti og bjargaði á línu. Strax í kjölfarið varði Tönning vel frá Benedikt Warén.

Stjarnan hélt áfram að þjarma að marki KA og Haukur var í dauðafæri en KA menn fjölmenntu í kringum hann og náðu að bjarga.

Eftir rúmlega hálftíma leik brutu Stjörnumenn múrinn. Þorri Mar Þórisson, fyrrum leikmaður KA, áatti glæsilega fyrirgjöf og Benedikt skallaði boltann í netið afa stuttu færi.

Stuttu síðar urðu gestirnir manni færri. Tönning kom út fyrri teiginn og hreinsaði í burtu. Alex Þór Hauksson renndi sér í hann og uppskar rautt spjald.

Seinni hálfleikurinn var í eigu KA manna. Þeir vildu fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist vara í höndina á Samúel Kára Friðjónssyni en Elías dómari dæmdi ekkert við litla kátínu KA manna.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var hársbreidd frá því að jafna metin en skot hans small í þverslánni. Valdimar Logi Sævarsson átti síðan frábært skot en Árni varði frábærlega í horn.

Upp úr horninu skoraði Ásgeir og jafnaði metin fyrir KA. Þeim tókst ekki að bæta við mörkum og jafntefli því niðurstaðan.
Athugasemdir
banner