Fotbolti.net
11.10.26 - 14:22
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Liverpool og Man City: Enn eitt áfallið fyrir heimamenn

Dominik Szoboszlai er ekki í hópnum

Dominik Szoboszlai er ekki í hópnum

Canon

Mynd: EPA

Liverpool tekur á móti Manchester City í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á Anfield klukkan 15:30.
Það verður líklega heitt í kolunum á Anfield í dag. Aðeins nokkrar vikur eru síðan Man City var fundið sekt um brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018 og stuðningsmenn Liverpool eru ósáttir, enda hafa liðin oft barist um titilinn undanfarin ár.

Það var vitað að Cody Gakpo og Alexander Isak yrðu ekki með Liverpool en þegar byrjunarliðin voru tilkynnt rétt í þessu kom í ljós að Dominik Szoboszlai er heldur ekki í hópnum. Hinn 21 árs gamli Lewis Koumas byrjar ásamt Victor Munoz.

City er með gríðarlega sterkt lið og gerir aðeins eina breytingu frá síðasta leik. Nico O'Reilly kemur inn fyrir Josko Gvardiol sem er á bekknum.

Liverpool: Alisson; Araújo, Van Dijk, Jacquet, Kerkez; Mac Allister, Gravenberch; Víctor Muñoz, Koumas, Barcola; Wirtz

Man City: Donnarumma; Matheus Nunes, Rúben Dias, Guéhi, O'Reilly; Enzo Fernández, Anderson; Semenyo, Cherki, Ndiaye; Haaland.






Haaland er á sínum stað í liði Man City

Haaland er á sínum stað í liði Man City

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.