11.10.26 - 14:58
Brynjar Ingi Erluson
England: Samba-bolti hjá Palace - Everton áfram taplaust

Thierno Barry skoraði fyrir Everton

Mynd: EPA

Oliver Glasner tapaði á Selhurst Park

Mynd: EPA

Kamada skoraði eftir frábært samspil Palace-manna

Mynd: EPA

Thierno Barry skoraði fyrir Everton

Mynd: EPA
Everton er enn taplaust í ensku úrvalsdeildinni eftir 2-2 jafntefli við nýliða Hull City á MKM-leikvanginum í dag. Á sama tíma fór Oliver Glasner tómhentur af sínum gamla heimavelli þegar Crystal Palace vann Nottingham Forest 3-1.
Lítið gerðist fyrsta hálftímann í leik Hull og Everton en það dró til tíðinda á 37. mínútu er Brennan Johnson kom boltanum í netið. Barry hafði þá unnið einvígi við Kostas Tzolakis, markvörð Hull, og boltinn að lokum borist til Johnson. Hull-menn vildu brot á markvörðinn en markið var dæmt af vegna rangstöðu í aðdragandanum.
Nobel Mendy fékk dauðafæri til að koma heimamönnum yfir fyrir hlé en skallaði hátt yfir eftir hornspyrnu.
Joe Gelhardt var ógnandi í fyrri hálfleik og hélt uppteknum hætti í þeim síðari. Slæm snerting Ainsley Maitland-Niles færði Sorba Thomas boltann og hann renndi honum framhjá bakverðinum á Gelhardt, sem vippaði laglega yfir Jordan Pickford.
Maitland-Niles bætti fyrir mistökin nokkrum mínútum síðar með góðri sendingu á Kiernan Dewsbury-Hall sem skallaði í netið.
Barry fór illa með gott færi þegar hálftími var eftir en bætti fyrir það átta mínútum síðar. Sending Dewsbury-Hall fór af varnarmanni og inn fyrir vörnina þar sem Tzolakis hikaði við að koma út. Barry nýtti sér það, náði boltanum og skoraði snyrtilega í hægra hornið.
Hull svaraði aðeins fimm mínútum síðar. Elliot Stroud braust framhjá tveimur varnarmönnum vinstra megin við teiginn og fann Mohamed Belloumi. Hann lyfti boltanum yfir varnarmann og hamraði honum svo í hægra hornið.
Fleiri urðu mörkin ekki. Everton er enn taplaust og í fimmta sæti með tíu stig en Hull í því níunda með níu.
Glasner fór tómhentur heim
Oliver Glasner fékk ekkert með sér úr endurkomunni á Selhurst Park þar sem Crystal Palace vann Nottingham Forest 3-1.
Glasner hætti með Palace í sumar og tók við Forest. Lið hans byrjaði þó vel og Dan Ndoye skoraði eftir tæpar þrjár mínútur. Anan Khalaili gerði þá slæm mistök og skallaði boltann inn fyrir eigin vörn á Ndoye sem kláraði örugglega.
Daichi Kamada jafnaði á 41. mínútu eftir stórkostlegt samspil. Palace-menn léku boltanum hratt á milli sín með stuttum sendingum þar til Kamada fékk hann í teignum og skoraði. Hrein unun að horfa á.
Jefferson Lerma kom heimamönnum svo yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann skallaði hornspyrnu Adam Wharton í netið.
Yeremy Pino bætti við þriðja markinu áður en klukkutími var liðinn. Vörn Forest var þá í tómu tjóni og boltinn hrökk á milli varnarmanna áður en Matz Sels varði skot. Pino náði frákastinu og rúllaði boltanum í netið.
Forest er í fjórtánda sæti með fimm stig en Palace í því tólfta með sjö.
Crystal Palace 3 - 1 Nott. Forest
0-1 Dan Ndoye ('3 )
1-1 Daichi Kamada ('41 )
2-1 Jefferson Lerma ('45 )
3-1 Yeremy Pino ('59 )
Hull City 2 - 2 Everton
1-0 Joe Gelhardt ('48 )
1-1 Kiernan Dewsbury-Hall ('55 )
1-2 Thierno Barry ('68 )
2-2 Mohamed Belloumi ('74 )

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +8 | 15 |
| 2 | Arsenal | 6 | +5 | 15 |
| 3 | Brighton | 6 | +13 | 13 |
| 4 | Brentford | 6 | +6 | 10 |
| 5 | Everton | 6 | +3 | 10 |
| 6 | Chelsea | 6 | +2 | 10 |
| 7 | Leeds | 6 | +3 | 9 |
| 8 | Liverpool | 5 | +3 | 9 |
| 9 | Hull City | 6 | +2 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 6 | -3 | 9 |
| 11 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 12 | Crystal Palace | 6 | -4 | 7 |
| 13 | Man Utd | 6 | 0 | 6 |
| 14 | Nott. Forest | 6 | -2 | 5 |
| 15 | Aston Villa | 6 | -5 | 5 |
| 16 | Sunderland | 6 | -6 | 4 |
| 17 | Bournemouth | 6 | -6 | 3 |
| 18 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |
| 19 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 20 | Fulham | 6 | -4 | 2 |