11.10.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Galið að Víkingur sé að falla"

Víkingar leika í Lengjudeildinni næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik hjá Víkingum.

Eftir að hafa verið á mikilli uppleið síðustu ár, þá féll kvennalið Víkings úr Bestu deild kvenna í sumar. Bikarmeistararnir frá 2023 fundu einhvern veginn aldrei taktinn í sumar og neðsta sætið varð niðurstaðan.
„Víkingur þarf að fara virkilega vel yfir hvað gekk á þetta tímabilið og af hverju þetta endar svona," sagði Arnar Páll Garðarsson þegar rætt var um fall Víkinga í Uppbótartímanum.
„Að mínu mati er það galið að Víkingur sé að falla," bætti hann við.
Í leikmannhópnum er nokkur fjöldi leikmanna með yngri landsleiki, jafnvel A-landsleiki, og leikmenn sem hafa farið erlendis í atvinnumennsku.
Víkingur ætlaði sér klárlega stærri hluti í sumar og var spáð þriðja sæti fyrir tímabilið. Þjálfarar og leikmenn Víkings voru að stefna hátt sumarið.
„Ef leikmenn eru komnir þangað að þær halda að þær eigi að vera í titilbaráttu en falla, þá segir það sig sjálft að það er mjög mikið að. Það þarf að fara vel yfir þetta og taka réttar ákvarðanir fyrir næsta tímabil," sagði Arnar en hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.