Fotbolti.net
11.10.26 - 16:30
Snæbjört Pálsdóttir

Cecilía hélt að Hlín hefði skorað: „Ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum“

Auglýsing
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hafði gaman af frammistöðu systranna Örnu og Hlínar Eiríksdætra gegn Króatíu en ruglaðist sjálf á þeim þegar fyrsta markið var skorað.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir hafði gaman af frammistöðu systranna Örnu og Hlínar Eiríksdætra gegn Króatíu en ruglaðist sjálf á þeim þegar fyrsta markið var skorað.

Canon

Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal

Kvennalandslið

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður íslenska landsliðsins, viðurkennir að hún hafi ruglast á systrunum Örnu og Hlín Eiríksdætrum þegar sú fyrrnefnda kom Íslandi yfir gegn Króatíu á föstudaginn.

Arna byrjaði sinn fyrsta A-landsleik og skoraði tvívegis í 4-0 sigri Íslands. Hlín, eldri systir hennar, komst einnig á blað og skoruðu þær því þrjú af fjórum mörkum íslenska liðsins.

Cecilía var spurð hvort einhver pressa væri nú komin á Hlín að skora fleiri mörk en yngri systirin í seinni leiknum á þriðjudaginn.

„Já, ég held hún sé að setja þessa pressu á sig sjálf sko,“ sagði Cecilía.

Hún viðurkenndi síðan að hafa sjálf ruglast á því hvor systirin hefði skorað fyrsta mark leiksins.

„Ég hélt náttúrulega að Hlín hefði skorað fyrsta markið og ég sá bara Eiríksdóttir uppi á skjánum.“

Cecilía sá spaugilegu hliðina á málinu og bætti hlæjandi við:

„Hún getur bara sagt að hún hafi skorað þrennu. Eiríksdóttir, skiptir ekki máli.“

Cecilía var afar ánægð með frammistöðu Örnu og hrósaði henni sérstaklega fyrir að skora tvö mörk í sínum fyrsta byrjunarliðsleik.

„Ótrúlega stolt af Örnu að hafa komið ísköld í þennan leik og skorað tvö.“

Ísland og Króatía mætast aftur á Laugardalsvelli á þriðjudaginn þar sem íslenska liðið fer inn í leikinn með fjögurra marka forskot, það verður því fróðlegt að sjá hvort við fáum ekki fleiri mörk frá systrunum. 

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.