Fotbolti.net
11.10.26 - 21:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Fyrsti heimasigur Blika í 76 daga

Besta deildin: Fyrsti heimasigur Blika í 76 daga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveir leikir fóru fram í efri hlutanum í Bestu deildinni í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings fengu Skagamenn í heimsókn.

Víkingur komst yfir snemma leiks eftir klaufaleg mistök hjá ÍA. Guðmundur Þórarinsson átti slaka sendingu til baka og Valdimar Þór Ingimundarson komst í boltann og skoraði.
Tíu mínútum seinna átti Sveinn Aron Guðjohnsen skalla að marki en Árni Marinó Einarsson varði vel. Boltinn datt hins vegar fyrir Aron Elís Þrándarsson sem tvöfaldaði forystu Víkings.

Markús Páll Ellertsson náði að minnka munnn þegar hann skoraði eftir sendingu frá Gísla Eyjólfssyni. Skagamenn jöfnuðu síðan metin snemma í seinni hálfleik þegar Oliver Ekroth varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Fleira gerðist ekki og jafntefli var niðurstaðan.

Breiðablik vann sinn fyrsta heimaleik í 76 daga þegar liðið lagði Keflavík. Viktor Karl Einarsson sá til þess að Breiðablik var með forystuna í hálfleik.

Jónatan Guðni Arnarsson bætti síðan öðru markinu við en það var glæsilegt skot í fjærhornið.

Eiður Orri Ragnarsson náði að minnka muninn en Höskuldur Gunnlaugsson innsiglaði sigur Breiðabliks.

Víkingur R. 2 - 2 ÍA
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('7 )
2-0 Aron Elís Þrándarson ('17 )
2-1 Markús Páll Ellertsson ('36 )
2-2 Peter Oliver Ekroth ('53 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn

Breiðablik 3 - 1 Keflavík
1-0 Viktor Karl Einarsson ('18 )
2-0 Jónatan Guðni Arnarsson ('69 )
2-1 Eiður Orri Ragnarsson ('76 )
3-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('91 )
Lestu um leikinn
Besta deildin: Fyrsti heimasigur Blika í 76 daga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.