11.10.26 - 13:55
Brynjar Ingi Erluson
Nýr leikmaður Tottenham gagnrýndur - „Leyfðum Vuskovic að fara og fengum asna í staðinn“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sparkspekingurinn Jamie O'Hara hefur fengið sig fullsaddan af hollenska landsliðsmanninum Jan Paul van Hecke og kallar eftir því að þeir sem fengu hann verði reknir frá Tottenham.

TENGT EFNI
England: Læti og dramatík á Old Trafford
Van Hecke var keyptur frá Brighton í sumar og fór króatíski miðvörðurinn Luka Vuskovic í hina áttina.
Það kom svolítið á óvart að Tottenham hafi leyft Vuskovic að fara, en flestir töldu nú að kaupin á Van Hecke væru góð.
Hann hefur ekki heillað O'Hara sem hraunaði yfir hann í beinu streymi á talkSPORT.
„Hvað er Van Hecke að gera? Hann er með sement í skónum. Hann er ekkert eðlilega slakur leikmaður. Gefur frá sér upplagt dauðafæri í eigin vítateig. Þetta lið er algjört brandari og er alveg kominn með upp í kok af þessu.“
„Það þarf að reka þann sem keypti hann. Hann er algjör asni. Við leyfðum Vuskovic að fara og fengum asna í staðinn. Í hvert einasta sinn sem leikmaður fer í einn á einn á hann þá ná þeir skotinu. Þetta er hræðilegt,“ sagði O'Hara.
Frammistaða hans hefur ekki verið góð á tímabilinu og þá hefur hann verið gagnrýndur heima fyrir eftir síðasta landsleikjaglugga.
Tottenham hefur gengið illa í byrjun leiktíðar og er með aðeins þrjú stig eftir sex umferðir og ekki enn unnið leik.