11.10.26 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson
Endurkomusigur hjá lærisveinum Sigga Ragga

Siggi Raggi og félagar færast nær titlinum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík færðust skrefi nær færeyska deildartitlinum með því að vinna 2-1 endurkomusigur á Skala í dag.
NSÍ lenti marki undir í leiknum, en náði að skora tvö mörk á lokamínútum fyrri hálfleiks.
Það dugði NSÍ til sigurs sem er áfram með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.
Alex Freyr Elísson var ekki með NSÍ í dag, en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins.
Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru í byrjunarliði Lyngby sem tapaði fyrir Bröndby, 5-2, í dönsku úrvalsdeildinni.
Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af bekknum í hálfleik en William Steindórsson var ónotaður varamaður. Lyngby er í 10. sæti með 7 stig.
Nökkvi Þeyr Þórisson kom inn á sem varamaður hjá Telstar sem gerði 2-2 jafntefli við Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni. Telstar er í 15. sæti með 6 stig eftir átta umferðir.